E L D V A R N A R H U R Ð I R O G A Ð R A R S T Á L H U R Ð I R
Glófaxahurðir
Aðalframleiðsluvara fyrirtækisins eru hinar landsþekktu Glófaxa eldvarnarhurðir sem hafa hlotið almenna viðkenningu á markaðinum fyrir gæði og áreiðanleika.
|
Glófaxa EI 60 hurðir
|
Allar stærðir, einfaldar, tvöfaldar, rennihurðir???
Eldvarnarhurðirnar eru framleiddar í mörgum gerðum og stærðum allt frá því að vera lúgur til að loka einstökum hólfum upp í hurðir sem eru margir fermetrar að stærð Stærstu hurðirnar, sem framleiddar hafa verið eru yfir 6 metrar á hæð og rúmir 4 metrar á breidd.
Öryggishurðir
Eldvarnarhurðir gegna ekki einungis því hlutverki að koma í veg fyrir útbreiðslu elds heldur hefta þær einnig för innbrotsþjófa miklu betur heldur en venjulegar tréhurðir. Glófaxi framleiðir einnig hurðir sem sérstaklega eru ætlaðar sem öryggishurðir, með þriggja punkta læsingu og öflugri skrám en þörf er á ef einungis er ætlunin að tefja hugsanlegan eld.
Felliþröskuldar og karma útfærslur
Felliþröskuldar undir flestar gerðir Eldvarnarhurða í ýmsum stærðum frá 365 til1300mm


